아래는 노래 가사입니다. Ljósið , 아티스트 - Skálmöld 번역 포함
번역이 포함된 원본 텍스트
Skálmöld
Ljósið dansaði, logar skinu
Það létti okkur veturinn, hrakti burtu kala
Ákaft brann i eldstæðinu
Sá ylur veitti svöngum ró
Skall á torfinu vestanvindur
Sem vakti ótal óhreinar hugsanir af dvala
Fingur alla frostið bindur
Er fýkur lif úr östkustó
Stakkur minn er storkinn köldu blóði
Stendur hagl og illska mér í fang
Þungfær liggur þröngur bæjarslóði
Þreytist ég við dimman éljagang
Ljósið andaðist, logar dóu
Við lágum tvö í myrkrinu, heyrðum börnin gráta
Tíðin var of góð á góu
Nú geldur harpa fyrir það
Draugagaddurinn bítur beinin
Hvað bældi niður glóðina?
Það er snúin gáta
Hlusta ég á vesæl veinin
Og verð að koma mér af stað
Niðadimm og náköld brennir móðan
Nálgast hjáleiguna, allt er hljótt
Fimbulnæturfrost mig setur hljódan
Ferja þarf ég eldinn heim í nótt
Í nótt fraus á tjörn
Í nótt dóu börn
Í nótt frusu litlar hendur í hel
Sem höfðu áður leik að legg og skel
Í nótt fraus á tjörn
Brýst ég heim að bæjarskör
Ber með hnefa hurð af hjör
Birtan sýnir liðin lik
Lokk af enni þeirra strýk
Konan fölnuð, börnin blá
Bædi liggja, hún þeim hjá
Kaldan horfi köstinn í
Kveiki ég upp eld á ný?
Kveiki ég upp eld á ný?
Littu út um ljórann, vinur
Og leyfðu mér að kveðja þig
Skálinn allur skekst og hrynur
Þá Skotta vildi gleðja sig
다양한 언어로 된 노래
모든 언어로 고품질 번역
몇 초 만에 원하는 텍스트를 찾으세요