Syneta - Bubbi Morthens

Syneta - Bubbi Morthens

  • 출시년도: 2016
  • 언어: 아이슬란드어
  • 지속: 4:15

아래는 노래 가사입니다. Syneta , 아티스트 - Bubbi Morthens 번역 포함

노래 가사 " Syneta "

번역이 포함된 원본 텍스트

Syneta

Bubbi Morthens

Milli jóla og nýjárs um nótt við komum

Í nístingskulda, slyddu og él

Syneta hét skipið sem skreið við landið

Með skaddað stýri og laskaða vél

Við austurströndina stóðum á dekki

Störðum í sortans kólguský

Drunur brimsins bárust um loftið

Bæn mín drukknaði óttanum í

Innst í firðinum sáum við ljósin lýsa

Ljósin sem komu þorpinu frá

Um síðir þau hurfu í hríðina dökku

Um hjörtu okkar flæddi lífsins þrá

Þessa nótt skipið á Skrúðnum steytti

Skelfing og ótti tóku öll völd

Í bátana komumst við kaldir og þreyttir

Í kolsvarta myrkri beið aldan köld

Þá nótt við dóum, drottinn minn góður

Drukknuðum bjarglausir einn og einn

Himinn og haf sýndust saman renna

Okkar síðasta tak var brimsorfinn steinn

Í þangi við fundumst, en fimm ennþá vantar

Fjörunni aldan skilaði oss

Í hús á börum við bornir vorum

Með bláa vör eftir öldunnar koss

Ef þú siglir um sumar vinur

Og sérð við Skrúðinn brimsorfin sker

Viltu biðja þeim fyrir er fórust

Þeim fimm sem aldrei skiluðu sér

사이트에 새로운 텍스트와 번역이 추가되었습니다:

200만 개 이상의 가사

다양한 언어로 된 노래

번역

모든 언어로 고품질 번역

빠른 검색

몇 초 만에 원하는 텍스트를 찾으세요