Til Þín -

Til Þín -

  • 출시년도: 2014
  • 언어: 아이슬란드어
  • 지속: 3:44

아래는 노래 가사입니다. Til Þín , 아티스트 - 번역 포함

노래 가사 " Til Þín "

번역이 포함된 원본 텍스트

Til Þín

Hvort fann ég, Þig eða tímann

Þarflaust að líma'nn

Og ég held ég hafi aldrei áður komið mér í slíkan lás

Því ég ann þér?

Megi þér glíman

Giskin við símann

Verða hugrenningi í góðu eða hljóði svo þú verðir hás

En ég veit að þó við séum eins á litinn

Er veröld okkar sundurslitin

Á baki þínu stendur að þú búist til að kveðja mig

Og ég veit að hjarta mitt það er í miðið

Verulega sárt og sviðið

Og klofið eins og kilja

Þó ég kannski myndi vilja

Að mér láist að skilja þig

Hvort finn ég, þig eða tíma

Til þess að glíma

Við heimskulegar aðstæður sem enda þar til verð ég lens

Hef ég nær þér nokkru sinn verið?

Og hvað sem þér gerið

Þá er höfuðið að veði þótt þú fáir alltaf annan séns

En ég veit að þó við séum eins á litinn

Er veröld okkar sundurslitin

Á baki þínu stendur að þú búist til að kveðja mig

Og ég veit að ennþá mun ég þurfa að bíða

Strjúka enni mitt og svíða

Og þó að ég sé hjálmur

Þá er þessi litli sálmur alveg sérstaklega til þín

사이트에 새로운 텍스트와 번역이 추가되었습니다:

200만 개 이상의 가사

다양한 언어로 된 노래

번역

모든 언어로 고품질 번역

빠른 검색

몇 초 만에 원하는 텍스트를 찾으세요