아래는 노래 가사입니다. Álfheimur , 아티스트 - Skálmöld 번역 포함
번역이 포함된 원본 텍스트
Skálmöld
Úti blæs og fjörður frýs
Fimbulvetur ræður
Yfir vakir álfadís
Inni loga glæður
Varúlfs heyrist vígagól
Vargurinn er óður
Álfabarn í krömum kjól
Kúrir sig hjá móður
Hrynja og skjálfa gljúfragil
Grýta þig bjálfar magrir
Heima þeir sjálfir halda til
Hér sofa álfar fagrir
Þrumuguðinn skóginn skók
Skjól er Óðinn lofum
Lesum við á lærða bók
Leggjumst þar og sofum
Álfabörn í hárri höll
Heyrist enginn grátur
Ráfa úti risar, tröll
Ráðast álfagátur
Kvöldin brenna kaldar senn
Kálfsins spenna græðir
Völdin renna aldar enn
Álfsins penna ræðir:
Hlýja greiðir hálfa leið
Harma- sneiðir kveinið
Lýja reiðir álfa eið
Arma neyðir veinið
다양한 언어로 된 노래
모든 언어로 고품질 번역
몇 초 만에 원하는 텍스트를 찾으세요