Að Sumri - Skálmöld

Að Sumri - Skálmöld

Год
2014
Язык
`아이슬란드어`
Длительность
311770

아래는 노래 가사입니다. Að Sumri , 아티스트 - Skálmöld 번역 포함

노래 가사 " Að Sumri "

번역이 포함된 원본 텍스트

Að Sumri

Skálmöld

Allt þar féll í ljúfa löð

Landið friðsælt, gjöful tröð

Bændur, hjú og börnin glöð

Beið ein þar snót og þagði

Friður geymdi fold og menn

Fimm ár liðu, nokkur enn

Land undir fót þá lagði

Land undir fót þá lagði

Enginn sína ævi veit

Áði hún í Mývatnssveit

Áfram yfir landið leit:

«Lengra ég þarf að halda!»

Ung hún steig á Austurland

Eygði skóg og svartan sand

«Illt skal með góðu gjalda

Illt skal með góðu gjalda.»

Sjónarspil við dalsins dyr

Dimmu kljúfa sólstafir

«Heitböndin munu halda.»

Sitthvað slæmt í lofti lá

Lamdi brimið klettatá

«Illt skal með góðu gjalda

Ef fjendur af Gerpinum sjást

Goðin þeim hjálpi sem finnast og nást.»

Enga gísla!

Enga gísla!

«Móti skal tekið af mikilli heift

Mótherjum bannað sem vinum er leyft.»

Þórunn gaf austrinu bein sín og blóð

Beið þess að fylgja í vættanna slóð

Færum þeim þakkir sem fórnuðu sér

Fóru gegn ógnar- og óvinaher

Fuglarnir syngja og fljótið er tært

Fjögur að nóttu og sólin skín skært

Engin er hindrun og allt virðist fært

Ekkert fékk Þórunni bugað

Lækurinn gljáfrar er líður hann hjá

Landið er allt ósköp fallegt að sjá

Barnið því gleymdi sem bjátaði á

Bara að það hefði dugað

Sumarið kveikir í bróstunum bál

Brosir og fagnar hver einasta sál

Mundu að tileinka mönnunum skál

Mikið við öll höfum þolað

Miðnætursólin er miðpunktur alls

Móarnir loga frá ströndu til fjalls

Kveiknaði ást milli hennar og hals

Henni fékk ekkert út skolað

200만 개 이상의 가사

다양한 언어로 된 노래

번역

모든 언어로 고품질 번역

빠른 검색

몇 초 만에 원하는 텍스트를 찾으세요