Ásgarður - Skálmöld

Ásgarður - Skálmöld

Альбом
Vögguvísur Yggdrasils
Год
2016
Язык
`아이슬란드어`
Длительность
343060

아래는 노래 가사입니다. Ásgarður , 아티스트 - Skálmöld 번역 포함

노래 가사 " Ásgarður "

번역이 포함된 원본 텍스트

Ásgarður

Skálmöld

Einherjar streyma frá Iðavelli

Enginn gaf líf sitt við leikinn í dag

Flétta í dróttkvætt og fornyrðislag

Fimlegar vísur um Gnipahelli

Þurrka af sverðunum bleksvart blóðið

Brynjunum kasta í Drekkingarhyl

Hreinsa og strjúka og hrista svo til

Hungraðir allir, svo inn þeim bjóðið

Glaumurinn berst yfir gang til okkar

Goðin þar sitja og drekka sinn mjöð

Yggdrasils skýla þér bolur og blöð

Bardagaherir og stórir flokkar

Þagnaðu, anginn og þægur vertu

Þú ert af ása og konungaætt

Fátt er þar úti sem fær okkur hrætt

Freyja þín gætir svo hólpinn ertu

Ef ég þessu ljóði lyki

Líklega við heyrðum köll:

Horfir hann frá Breiðabliki

Baldur, yfir okkur öll

Valhallar blæs til vindurinn

Veinandi hvæs og brestir

Heimdallur læsir hingað inn

Hér sofa æsir mestir

Hér sofa æsir mestir!

Sofðu nú lengi og sofðu vel

Sængin er dýrasti dúkur

— geymi þig Óðinn og gleymd sé Hel —

Gullsleginn svæfillinn mjúkur

Fegurðin, gáfur og þokki þinn

Þykja mér feykinæg borgun

Vættirnar geymi þig, vinur minn

Við sjáumst aftur á morgun

200만 개 이상의 가사

다양한 언어로 된 노래

번역

모든 언어로 고품질 번역

빠른 검색

몇 초 만에 원하는 텍스트를 찾으세요