Fenrisúlfur - Skálmöld, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Fenrisúlfur - Skálmöld, Sinfóníuhljómsveit Íslands

  • 출시년도: 2017
  • 언어: 아이슬란드어
  • 지속: 6:17

아래는 노래 가사입니다. Fenrisúlfur , 아티스트 - Skálmöld, Sinfóníuhljómsveit Íslands 번역 포함

노래 가사 " Fenrisúlfur "

번역이 포함된 원본 텍스트

Fenrisúlfur

Skálmöld, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sólin nú brennur af Surtarglóð

Sjóðandi hafið er rautt sem blóð

Höldum til sigurs á hófum átta

Hólminn er vígvöllur engra sátta

Dauðlegi maður, Þú dugar lítt

Deigt er þitt sverð móti Fenris skolti

Skepnan, hún grenjar, en orðin grýtt

Geta ei unnið á Hilmars stolti

Upp dreg ég sverðið, við æðum hjá

Úlfurinn skelfileg sjón að sjá

Ofsaleg bræðin í augum brennur

Beljandi sýnir hann klær og tennur

Goðin og Týr áður guldu dýrt

Gleipnir er vopn sem þú veldur ekki

Herópið skerandi, hátt og skýrt

Skal ég þér koma í bönd og hlekki

Þú ert máttlaus og magur

Þú ert ræfill og ragur

Nú ég dreg þig í dauðann

Ég mun binda þig blauðan

Þú munt brotna og bresta

Þig skal fjötra og festa

Framar aldrei munt anda

Eigin grimmd mun þér granda

Úlfur núna manni mætir

Miklar eru hættur heima

Regnið alla veröld vætir

Vopnast fjendur tveir

Sverðið mætir svörtum tönnum

Sveima yfir höfðum hrafnar

Óðinn hjálpar mætum mönnum

Máttlaus bænin deyr

Bardagamóður er bundið fæ

Blóðugan úlfinn og síðan næ

Gelgju að þræða í Gjöll og þrælinn

Þvita svo nota sem festarhælinn

Hetjan mig lagði og hefur enn

Hendur við úlfliði fastar báðar

Gætið að því, bæði goð og menn

Guðlegar orrustur eru nú háðar

아티스트의 다른 노래:

사이트에 새로운 텍스트와 번역이 추가되었습니다:

200만 개 이상의 가사

다양한 언어로 된 노래

번역

모든 언어로 고품질 번역

빠른 검색

몇 초 만에 원하는 텍스트를 찾으세요