Með Drekum - Skálmöld

Með Drekum - Skálmöld

Год
2014
Язык
`아이슬란드어`
Длительность
449570

아래는 노래 가사입니다. Með Drekum , 아티스트 - Skálmöld 번역 포함

노래 가사 " Með Drekum "

번역이 포함된 원본 텍스트

Með Drekum

Skálmöld

Hátt á vængjum vættur

Veru fylgja herir

Yfir horfir hafið

Hendast nærri fjendur

Skríða yfir Skrúðinn

Skrælingjar í brælu

Ljótir á oss leita

Landið er í vanda

Barðist fólk á fjöru

Fór á höfðann Þórunn

Bogi gat ei geigað

Grenja undan frenjur

Gjalda ógn með eldi

Yfir allt sem lifir

Hetjur böls og haturs

Hrekjast undan dreka

Um fór, ógnandi stór

Álengdar stóðu þá Bragi og Þór

Hart skal mæta hörðu

Blés þá brandinum sá

Brunnu þar allir við Sandvíkurá

Jöfnum þá við jörðu

Jöfnum þá við jörðu

Eldraun Auðna þessa þreytti

Þórunn með sitt sverð og skjöld

Nóttin til hins betra breytti

Blóðgaði hún drýslafjöld

Misstum bæði vár og vini

Var það blóðrauð sumarnótt

Rétt í tungls- og röðulsskini

Ráðast kvæði drótt

Bliksvart blóð

Brennheit glóð

Stelpan stóð

Stjörf og hljóð

Þeir komu á skipum, þeir komu úr lofti

Í kraumandi veðri og sjó

Þúsundum saman með þrumandi öskri

Og þefjan sem vit okkar sló

Vopnlausir flestallir, vargar og skepnur

Sem vilja með kjafti og klóm

Rífa þig sundur og ráðast á næsta

Með rauðhlaupin augun og tóm

Blésu þeir eldi á bátana okkar

Við börðumst á móti með heift

Verk þeirra manna sem ganga á glapstigum

Gátum við alls ekki leyft

Dýrkeyptur sigur en drekar og menn sýndu

Duginn sem skilaði þeim

Réttinum að geta ráfað að heiman

Og ratað á nýjan leik heim

200만 개 이상의 가사

다양한 언어로 된 노래

번역

모든 언어로 고품질 번역

빠른 검색

몇 초 만에 원하는 텍스트를 찾으세요