Með Griðungum - Skálmöld

Með Griðungum - Skálmöld

Год
2014
Язык
`아이슬란드어`
Длительность
545660

아래는 노래 가사입니다. Með Griðungum , 아티스트 - Skálmöld 번역 포함

노래 가사 " Með Griðungum "

번역이 포함된 원본 텍스트

Með Griðungum

Skálmöld

Stærst er þetta stríð af öllum

Standa þeir frá sjó að fjöllum

Saman völdum sigraköllum

Sundruð öll sem eitt við föllum

Lýkur stríði, lokast hringur

Lítill fugl með trega syngur

Tíminn niður stafnum stingur

Stendur vörðinn ferfætlingur

Fugl í norðri

Dreki í austri

Jötunn í suðri

Griðungur í vestri

Fjórða sinnið og fullreynt loks

Færðist lokastyrjöldin frá heiði til vogs

Báru hvor aðra á banaspjót

Báðar fylkingar, dýrt var það blót

Sótt var af hafi og sótt var af fjöllum

Sótt var úr lofti úr áttum öllum

Í húfi var landið og heiður þjóðar

Hópuðust kringum okkur vættir góðar

Griðungur í sjónum syndir

Sækja á hann ljótar myndir

Rífa klær og tæta tennur

Týnast líf er holdið brennur

Dugar meðan dagar líða

Dreki, fugl og jötunn bíða

Látrabjörgin lemja öldur

Laskað sverð og brotinn skjöldur

Þórunn barðist uns þrótturinn hvarf

Þarna hún kláraði ævistarf

Studdu við bak hennar staðfastur vættir

Svo standa á frjálsri grundu þú mættir

Ég bið að þú hafir í brjósti þér myndir

Hún bjargaði okkur og afmáði syndir

Gleymdu því ekki hvað gerðist, því sprundið

Er glatað og hvergi í ljóðstafi bundið

Griðungur og gömul kona

Gæta strandar, lífs og vona

Bogastrengur bítur fingur

Blóðið fossar, örin stingur

Barðist þorunn síðsta sinnið

Sigur grófst í þjóðarminnið

Herkvaðningin herðir trúna

Hringnum verður lokað núna

Sveitin þagnar, sverðin liggja ber

Svefninn langi bíður eftir þér

Klakabönd og kynjamyndir, kaldur vindur hvín

Myrkrið dansar, máninn á þig skín

Vættir gráta, vetur færist nær

Vindur kólnar meðan syrgja þær

Frystir allt og fjallið litast fannhvítt eins og lín

Myndast skuggar, máninn á þig skín

Þórunn Auðna, þakkarskuldin er

Þeirra sem að lifa, sorgin sker

Heljarköld í húminu er hinsta stundin þín

Meðan deyrðu, máninn á þig skín

200만 개 이상의 가사

다양한 언어로 된 노래

번역

모든 언어로 고품질 번역

빠른 검색

몇 초 만에 원하는 텍스트를 찾으세요