
아래는 노래 가사입니다. Miðgarðsormur , 아티스트 - Skálmöld, Sinfóníuhljómsveit Íslands 번역 포함
번역이 포함된 원본 텍스트
Skálmöld, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Sjórinn rauður sýður
Í sortanum hann bíður
Dagrenning og dauðastormur
Í djúpinu er Miðgarðsormur
Gakktu út á gróinn núp
Gáðu hvað mun prýða undirdjúp
Þarna yfir sjó og sand
Sérðu áfram líða Jörmundgand
Mæli ég því mikill er
Miðgarðsormur þræðir lönd og sker
Hann sem mig skal hitta vill
Hörfa þegar blæðir, kjarklítill
Renni ég færinu í fyrsta sinni
Festi við þóftu í kænu minni
Annað sinn kasta, hann ekki bítur
Ósnertri beitunni loks upp skýtur
Höfuð nautsins Himinhrjóðs
Hilmar ormi færir, ei til góðs
Bannvænn sýnist bitinn þó
Blóðið Gandsins ærir hugarró
Fylgja mun þér fegurð, ef
Fellir orminn langa, sérhvert skref
Eiturgusa æta má
Ásjónu og vanga, tapi sá
Þriðja sinn kasta og þá hann tekur
Þóftuna mölvar og bátinn skekur
Færið skal dregið af fullum krafti
Fátækleg hönd móti ormsins kjafti
Reipið sker, gatar glófa
Gegnum fer, særir lófa
Krókur í kjaftinn rífur
Krækjan því sker sem hnífur
Áfram þeir berjast báðir
Bræður tveir, þreyttir, þjáðir
Takast á, tíminn líður
Tengir þá strengum stríður
Höfuðið birtist í hafsins róti
Heggur í bátinn og streitist á móti
Blaðinu sting svo að blóð út stekkur
Bölvandi skepnan í hafrótið sekkur
Þegar hitti Þór
Þá munum við berjast
Staðfastur og stór
Standa mun og verjast
Agnið beit víst á
Ásgarður mig svíkur
Jörmundgandur, já
Ég er sá sem víkur
Báru klýfru bátur
Og bátsmaður er kátur
Landið tekur, fleyið festir
Þar fljúga yfir nokkrir þrestir
Aftru skepnan skríður
Í skjól og þar hann bíður
Létti til og lægði storminn
Er lagði Hilmar Miðgarðsorminn
Angela Maria • 1956
Ece Seçkin • 2024
Eloy • 1992
Jam in the Van, Trash Panda • 2023
Reinaldo • 2002
Çeşitli Sanatçılar, Alp Arslan, Faruk Salgar • 2012
I$$A • 2020
다양한 언어로 된 노래
모든 언어로 고품질 번역
몇 초 만에 원하는 텍스트를 찾으세요