
아래는 노래 가사입니다. Narfi , 아티스트 - Skálmöld 번역 포함
번역이 포함된 원본 텍스트
Skálmöld
Narfa ég hitti er nóttin var liðin
Niflheimahliðin
Kom hann í hnakki á kolsvörtum fola
Kólnaði gola
Starði á okkur með stingandi augum
Staðurinn umkringdur vofum og draugum
Þrek hans var búið og hugrekkið brostið
Beit okkur frostið
Loki vill buga legg þinn og hug
Lítið því duga vopn og vörn
Hlusti nú hver sem heyrir í mér:
Hættuleg eru Loka börn
Hann þekkir staðinn sem hrímar og frystir
Hel er hans systir
Sagði að núna hann vildi mig vara
Við því að fara
Niður til hennar sem Niflheimi stjórnar
Neyðir og pyntar og sveltir og fórnar
Bráðum ég myndi svo bágindum mæta
Brynhildi græta
Lævís og slyng þau læðast í hring
Lokka þig kringum Bæjartjörn
Hlusti nú hver sem heyrir í mér:
Hættuleg eru Loka börn
Vilja úr leyni vinna þér mein
Villidýr reynast hefnigjörn
Hlusti nú hver sem heyrir í mér:
Hættuleg eru Loka börn
Þig vilja hryggja, þau eru stygg
Þagna mun Frigg og fölna Hörn
Hlusti nú hver sem heyrir í mér:
Hættuleg eru Loka börn
Loki vill buga legg þinn og hug
Lítið því duga vopn og vörn
Hlusti nú hver sem heyrir í mér:
Hættuleg eru Loka börn
Angela Maria • 1956
Ece Seçkin • 2024
Eloy • 1992
Jam in the Van, Trash Panda • 2023
Reinaldo • 2002
Çeşitli Sanatçılar, Alp Arslan, Faruk Salgar • 2012
I$$A • 2020
다양한 언어로 된 노래
모든 언어로 고품질 번역
몇 초 만에 원하는 텍스트를 찾으세요